|
Verktaki-launþegi
Algengt er, að starfsmenn ráði sig
í vinnu sem verktakar. Í því
sambandi þarf þó að sýna
fyllstu aðgát, því að
samkvæmt skattalögum skiptir ekki máli,
hvað menn kalla ráðningarsamband sitt,
vegna þess að við skattlagningu er farið
eftir hinu raunverulega innihaldi þeirra. Á
þessu námskeiði er annars vegar farið
yfir muninn á verktakasambandi og launþegasambandi
og hins vegar hvaða afleiðingu það
getur haft fyrir hlutaðeigandi, ef í ljós
kemur, að tilgreining þeirra á sambandinu
stenst ekki þetta raunveruleikamat. Námskeiðið
tekur um þrjár stundir, og má
panta það á netfanginu agv@skattvis.is.
Lágmarksþátttakendafjöldi
á námskeiðinu er 10 manns.
|