Til forsiden
Bækur 
Útgáfa jöfnunarhlutabréfa | Skattur á fjármagnstekjur og eignir | Skattur á fyrirtæki 
Útgáfa jöfnunarhlutabréfa

Það skattamál, sem hvað mesta athygli hefur
vakið hér á landi hin síðari ár,er án efa mál
íslenska ríkisins gegn Félagi vatnsvirkja hf.
Fjallar það um heimild hlutafélagstil að gefa út jöfnunarhlutabréf á grundvelli eignarhluta í
Íslenskum aðalverktökum sf.
Taldi félagið, að miða bæri við raunverulegt
söluverð í því sambandi, en Hæstiréttur stofnverð
sem einungis var brot af söluverði, og
rökstuddi hann það með vísan til þess,
að með útgáfu jöfnunarhlutabréfa væri verið
að leiðrétta eigið fé hlutafélaga fyrir áhrifum
verðbólgu, það væri og tilgangur endurmatsins,
endurmat eigna og útgáfajöfnunarhlutabréfa
væri því tengt.

Í bókinni Útgáfa jöfnunarhlutabréfa - gagnrýnin endurskoðun á dómi Hæstaréttar í máli
Félags vatnsvirkja hf. ( 179 bls.), er því
haldið fram,að þessi niðurstaða Hæstaréttar sé
röng.
Tilgangurinn með útgáfu jöfnunarhlutabréfa hafi
sem sé ekki verið að leiðrétta eigið fé hlutafélaga
fyrir áhrifum verðbólgu,heldur að aflétta því misrétti
,sem hluthafar voru beittir við skattlagningu
hagnaðar af sölu eigna,
sem almennt var undanþeginn skatti hjá
öðrum fram til 1979. Þá sé hvergi í lögum né greinargerðum með þeim unnt að finna nokkra
vísbendingu um, að útgáfa jöfnunarhlutabréfa
og endurmat eigna sé tengt. Sá skilningur sé
auk þessmjög ósennilegur þegar afleiðingar
hans eru hafðar í huga.

Bókin Útgáfa jöfnunarhlutabréfa - gagnrýnin
endurskoðun á dómi Hæstaréttar í máli Félags
vatnsvirkja hf. -
hefur að geyma lýsingu á skattlagningu félaga
ogeigenda eignarhluta í þeim frá 1921 til 1962,
einkum við félagsslit, ítarlegar skýringar á ástæðum
þess, að útgáfa jöfnunarhlutabréfa var undanþegin
skatti með lögum nr. 70/1962, greinargóðar
upplýsingar um framkvæmd útgáfunnar á tímabilinu
frá 1962 til 1971, frá 1971 til 1979 og frá 1979 til
gildistöku fjármagnstekjuskattslaganna 1. janúar
1997.
Var tilgangurinn með ritun hennar tvíþættur,
annars vegar að benda á hve réttaröryggi í
skattamálumer í raun bágborið hér á landi
og hversu langt skattyfirvöld eru tilbúin að ganga
,til að ná fram niðurstöðu í máli,sem er þeim
þóknanleg,og hins vegar að vekja athygli á því,
hversu mikilvægar rannsóknir sjálfstætt starfandi skattalögfræðinga eru í þeirri viðleitni að
sporna við slíku háttarlagi. Bókin Útgáfa
jöfnunarhlutabréfa - gagnrýnin endurskoðun á dómi Hæstaréttar í máli Félags
vatnsvirkja hf. - kostar 2.100 kr. og má panta hana
á netfanginu agv@skattvis.is

<Forsíða
Skattvís | Bækur | Fræðsla | Námskeið | SkattaGetraunir
  Senda póst