Til forsiden
Skattvís 
Stofnendur | Fyrirtækið | Samstarfsaðili

Stofnendur

Ásmundur G. Vilhjálmsson lauk embættisprófi í lögfræði árið 1981, var við framhaldsnám í lögfræði í Árósum í Danmörku1989/90 og í Lundi í Svíþjóð 1991/93, meðal annars í einstaklingsskattarétti, fyrirtækjaskattarétti og alþjóðlegum skattarétti. Ásmundur hlaut styrk úr Vísindasjóði árið 1991 og 1992 til verkefnisins: Tekjuhugtak ísl. skattalaga, álagning og framkvæmd, og voru það hæstu styrkir, sem greiddir voru þau ár. Ásmundur hefur gefið út ritin Skattaréttur 1 til 4 árin 1994, 1995 og 1996, Skattur á fjármagnstekjur og eignir árið 1999, Útgáfa jöfnunarhlutabréfa - gagnrýnin endurskoðun á dómi Hæstaréttar í máli Félags
Vatnsvirkja hf. árið 2000 og Skattur á fyrirtæki árið2003.
Ásmundur var framkvæmdastjóri Vinnumálanefndar ríkisins frá 1981 til 1984, fulltrúi hjá bæjarfógetanum á Akranesi frá 1984 til 1986, deildarstjóri í launadeild fjármálaráðuneytisins frá1986 til 1989, deildarstjóri í skattadeild fjármálaráðuneytisins frá1989 til 1991 og sjálfstætt starfandi fræðimaður frá 1991 til 1996,
er hann hóf rekstur eigin lögmannsstofu.

Ragnheiður Bogadóttir stundar nám á fjórða ári í lagadeild HáskólaÍslands.

<Forsíða
Skattvís | Bækur | Fræðsla | Námskeið | SkattaGetraunir
  Senda póst