Skattur á
fjármagnstekjur og eignir
Bókin Skattur á fjármagnstekjur
og eignir (402 bls.) skiptist í fimm þætti.
Fjallar fyrsti þáttur um
aðdragandann að setningu laga um fjármagnstekjuskatt,
er tóku gildi 1. janúar 1997, og samanburð
á
skattlagningu fjármagnstekna hér á
landi og öðrum Norðurlöndum.
Annar þáttur fjallar svo almennt um skattskyldar
fjármagnstekjur og hvaða kostnað megi
draga frá þeim.
Er þar eingöngu um stutt yfirlit að ræða.
Í þriðja þætti er fjallað
um reglulegar tekjur af eignum, svo sem vexti, arð
og leigu. Myndar hann meginefni bókarinnar ásamt
fjórða þætti, er fjallar um ákvörðun
söluhagnaðar, þegar eignirnar, sem hinar
reglulegu tekjur gefa, eru seldar.
Þá er þar að finna ítarlega
umfjöllun um skattlagningu fjármálalegra
samninga, svo sem valréttarsamninga og kaup starfsmanna
á hlutabréfum á undirverði.
Fimmti og síðasti þáttur fjallar
loks um skattlagningu eigna, en skattur á þær
er í rauninni viðbótarfjármagnstekjuskattur.
Bókin Skattur á fjármagnstekjur
og eignir kostar
3.490 kr. og má panta hana á netfanginu
agv@skattvis.is
|
|