Til forsiden
Fræðsla 
Skattar og sport | Hvað er atvinnurekstur? | Fyrirspurnir

Skattar og sport

Samkvæmt reglugerð um frádrátt frá tekjum í atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi er m. a.
heimilt að gjaldfæra í rekstri fyrirbyggjandi
heilbrigðisþjónustu og almenna heilsubótaraðstöðu.
Með orðasambandinu almenn heilsubótaraðstaða
halda ýmsir, að átt sé við kaup á þjónustu
einkaþjálfara,almennan aðgangseyri
að líkamsræktarstöðvum, leigu á íþróttasal
o. fl., en svo er ekki.
Hafi atvinnurekandi gjaldfært slíkan kostnað í
atvinnurekstri sínum,myndi skattstjóri því
fella hann niður við endurskoðun á skattskilum
hans.
Þetta gildir þó ekki, hafi kostnaðurinn verið talinn
til tekna hjá hlutaðeigandi starfsmanni sem laun
eða hlunnindi. Jafnframt ber að hafa í huga,að hafi atvinnurekandi greitt fyrir íþróttaþjálfun starfsmanna
í tengslum við íþróttakeppni fyrirtækja (firmakeppni),
kann hann þó að mega draga kostnaðinn frá tekjum,
enda þótt hann hafi ekki verið talinn fram til tekna
hjá starfsmönnunum sem laun. Helgast það af því,
að þá þykir kostnaðurinn hafa auglýsingablæ.
Einmitt af þeim ástæðum myndi atvinnurekanda
vera heimilt að dragafrá tekjum kaup á
íþróttafatnaði,sem ber nafn hans og starfsmenn
nota við það tækifæri.
Um skatta og sport, þar á meðal
niðurstöður skattyfirvalda í ýmsum
ágreiningsmálum,er varða frádráttarbærni
slíks kostnaðar, er ítarlegar upplýsingar að
finna í bókinni Skattur á fyrirtæki.

<Forsíða
Skattvís | Bækur | Fræðsla | Námskeið | SkattaGetraunir
  Senda póst