Til forsiden
SkattaGetraunir  
Kvótakóngur | Bóndi | Dánarbú 
Kvótakóngur

Magnús á bát, sem búið er að afskrifa nánast að fullu, og fylgja honum aflaheimildir að verðmæti um 70 millj. Þetta eru úthlutaðar aflaheimildir, en það merkir að hyggist Magnús selja bátinn og aflaheimildirnar, yrði hann að greiða um 37,55% eða eftir atvikum 43,55% skatt af andvirði þeirra, þar sem fyrirtæki hans er einstaklingsfyrirtæki. Lengstum hefur útgerð Magnúsar gengið vel, og hefur hann varið rekstrarafgangi hennar í hlutabréf í ýmsum fyrirtækjum. Þá hefur hann lokið námskeiði í kaupum og sölu verðbréfa og gæti jafnvel hugsað sér að stunda verðbréfabrask í atvinnuskyni. Vandamálið er aðeins útgerðin. Um áramótin 2001/02 var mönnum eins og Magnúsi gert kleift að breyta einstaklingsfyrirtæki í einkahlutafélag án skattlagningar, og nýti Magnús sér það, getur hann lækkað skatt sinn af sölu útgerðarinnar úr 37,55% eða eftir atvikum 43,55% í 10%. Það munar um minna. Er hugsanlegt, að Magnús geti jafnvel sloppið algerlega við skattlagningu af sölu útgerðarinnar, og ef svo er, hvað þarf hann þá að gera, til þess að svo megi verða? Svar við þessari getraun skal senda á netfangið agv@skattvis.is fyrir 1. des. 2003, og fær sá, sem fyrstur kemur með rétt svar, í verðlaun, bókina Skattur á fyrirtæki.
<Forsíða
Skattvís | Bækur | Fræðsla | Námskeið | SkattaGetraunir
  Senda póst