Hvað er atvinnurekstur?
Hugtakið atvinnurekstur er hvergi skilgreint í
lögum. Almennt mun þó vera átt
við sjálfstæða starfsemi, sem stunduð
er með reglubundnum hætti og nokkru umfangi
í ekki mjög skamman tíma í
þeim efnahagslega tilgangi
að hagnast að fé. Til þess að
starfsemi geti talist atvinnurekstur, verður hún
því að fullnægja þremur
skilyrðum, það er skilyrðinu um (1)
sjálfstæði, (2) ákveðinn
regluleika og umfang og (3) hagnaðarvon. Sjáfstæðisskilyrðið
er almennt notað til að greina atvinnurekstur
frá launaðri vinnu. Hins vegar eru hin skilyrðin
tvö venjulega notuð til að afmarka
atvinnurekstur gagnvart tómstundastarfi. Í
ýmsum samböndum í lögum skiptir
miklu máli að vita, hvort
maður er verktaki, það er atvinnurekandi
eða launþegi annars vegar, eða verktaki,
það er atvinnurekandi eða tómstundamaður
hins vegar. Afar mikilvægt er því
að kynna sér vel reglur um þau atriði,
sem aðgreina þessi sambönd hvort frá
öðru. Í bókinni Skattur á
fyrirtæki er ítarlega fjallað um hugtakið
atvinnurekstur í íslenskum rétti
og með því að kynna sér
það stendur maður
ótvírætt betur að vígi
við samningsgerð sína.
|
|