Mánudagur,
1. sept. 2003
Bókin Skattur á fyrirtæki skiptist
í þrjá þætti. Fjallar
fyrsti þáttur um hugtakið atvinnurekstur,
hvaða tekjur tilheyra honum og hvenær, það
er, á hvaða ári atvinnurekanda telst
hafa hlotnast þær. Í öðrum
þætti ræðir svo um frádrátt
frá þessum tekjum, og skiptir þar
auðvitað mestu máli hinn almenni rekstrarkostnaður,
þar á meðal afmörkun hans gagnvart
útgjöldum, sem ekki má draga frá
tekjum, eins og einkakostnaði og fjármunakostnaði.
Bókinni lýkur svo á ítarlegri
greinargerð um skattlagningu einstakra fyrirtækjaforma,
svo sem hlutafélaga, sameignarfélaga og
einstaklingsfyrirtækja, og skattfrjálsa
umbreytingu þeirra úr einu rekstrarformi
í annað. Höfundur bókarinnar
Skattur á fyrirtæki er Ásmundur
G. Vilhjálmsson héraðsdómslögmaður
og forstöðumaður skattasviðs endurskoðunarfyrirtækisins
Grant Thornton, en þekkingarfélagið
SkattVís, samlagsfélag, gefur bókina
út. Bókin Skattur á fyrirtæki
kostar 9.700 kr. og má panta hana á netfanginu
agv@skattvis.is.
|
|