SkattaGetraunir 
Dánarbú | Bóndi | Kvótakóngur 

Dánarbú

Jón er nýlátinn, og meðal eigna hans við andlátið er íbúðarhús, ættaróðal í Þingholtunum, sem metið er á 50 millj., og dýrindis-málverkasafn að verðmæti að minnsta kosti 25 millj. Jón lætur eftir sig fjögur börn, og eru þau sammála um að selja allar eignir dánarbúsins hæstbjóðanda. Við það myndast að lágmarki um 30 millj. hagnaður, sem erfingjarnir áætla, að dánarbúið þurfi að svara 5,4 millj. tekjuskatti af. Er hugsanlegt, að erfingjarnir geti komist hjá þessum skatti, og ef svo er, hvað þurfa þeir þá að gera, til þess að svo megi verða? Svar við þessari getraun skal senda á netfangið agv@skattvis.is fyrir 1. okt. 2003, og fær sá, sem fyrstur kemur með rétt svar, í verlaun, bókina Útgáfa jöfnunarhlutabréfa - gagnrýnin endurskoðun á dómi Hæstaréttar í máli Félags vatnsvirkja hf.

<Forsíða
Skattvís | Bækur | Fræðsla | Námskeið | SkattaGetraunir
  Senda póst