Bóndi
Sigurður er búinn að vera bóndi
á Grund í 40 ár, en nú er
komið að því að hætta
og flytjast á mölina. Síðustu
ár
hefur búskapurinn gengið hálfbrösuglega,
þar sem tap hefur verið á honum. Af
tilboði í jörðina að dæma
sýnist Sigga, að hagnaður af sölu
eigna, það er véla og tækja,
útihúsa og þess háttar, muni
nokkurn veginn jafnast út á móti
tapinu. Öðru máli gegnir hins vegar
um 100 þúsund lítra mjólkurkvótann,
sem boðið hefur verið í hvorki meira
né minna en 25 millj. Af honum sýnist
Sigurði hann þurfi
að greiða um 10 millj. í tekjuskatt,
og verði því lítið sem ekkert
eftir til að kaupa sér íbúð
fyrir á mölinni. Er hugsanlegt, að Sigurður
geti fengið frest á þessari skattlagningu
eða jafnvel sloppið algerlega við hana,
og ef svo er, hvað þarf hann þá
að gera, til þess að svo megi verða?
Svar við þessari getraun skal senda á
netfangið agv@skattvis.is
fyrir 1. nóv. 2003 og fær sá, sem
fyrstur kemur með rétt svar, í verðlaun,
bókina Skattur á fjármagnstekjur
og eignir.
|
|